Hreindýr sem verma
Sýning Hólmfríðar Ófeigsdóttur, Hreindýr sem verma, verður opnuð í Listmunahorni Árbæjarsafns laugardaginn 17. júlí kl. 14.
Hólmfríður hófst handa við að prjóna úr hreindýraskinni haustið 2005 og prjónaði þá tvö vesti sem voru til sýningar á Auður Austurlands sama ár. Hólmfríður hringklippir hreindýraskinnin í ræmur sem hún prjónar síðan úr. Sumir munirnir eru prjónaðir úr einum heilum þræði á meðan aðrir ekki.
Sýningin stendur frá 17. júlí – 29.júlí og er opin alla daga kl.10-17.
TIL baka