Harmonikuhátíð-Heyannir

Harmonikkuhatid2008Harmonikuhátíð
Undanfarin ár hefur hátíðin notið mikilla vinsælda meðal gesta Árbæjarsafns. Dagskráin er að vanda vegleg og má sjá marga af okkar fremstu harmonikuleikurum. Auk þeirra mun stórsveit frá Harmonikufélaginu Hljóm  úr Reykjavík spila undir stjórn Sigurðar Alfonssonar. Sérstakir gestir eru meðlimir Félags Harmonikuunnenda á Suðurnesjum . Dagskráin hefst kl. 13.00 og lýkur með sameiginlegum tónleikum í lok dags.

Heyannir
Heyannir eru áviss viðburður á hverju býli. Við Árbæinn verða amboðin tekin fram og gestum og gangandi boðið að taka virkan þátt í heyönnum eins og þau tíðkuðust fyrir daga heyvinnuvéla. Um aldir höfðu Íslendingar engin önnur tæki, en ljá, orf og hrífu til að afla vetrarforðans. Víða var heyjað upp á gamla mátann fram yfir 1960, en nú eru gömlu handbrögðin sjaldséð í sveitum landsins. Það er því kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja rifja upp fyrri kynni við orf og hrífur að taka þátt í heyannadegi Árbæjarsafns.

TIL baka

Árbæjarsafns

Opnunartími

1. september - 30. maí

Leiðsögn mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 13:00. Tekið á mótum hópi eftir samkomulagi.

1. júní - 31. ágúst.

Opið frá kl. 10-17

Reykjavík 871 +/-2

Sýningin Reykjavík 871 er opin alla daga frá 10-17.

Reykjavík 871±2
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
Sími:411 6370

FACEBOOK

Minjasafn Reykjavíkur er nú búið að opna sína eigin Facebook síðu.

Facebook-breitt

Minjasafn ReykjavíkurÁrbæjarsafniKistuhyl110 ReykjavíkSími 411 6300minjasafn@reykjavik.is
grar fotur fotur